Ráðstefna 2023

Á ráðstefnunni Ný sókn gegn kynbundnu ofbeldi og heimilisofbeldi var gefið yfirlit yfir hina hröðu og þýðingarmiklu þróun í þeim málum með það að markmiði að efla stefnumótun og bæta þjónustuna við þolendur kynbundins ofbeldis.

Ráðstefnan var haldin fimmtudaginn 25. maí kl. 8.30–17.00 á Hótel Natura Reykjavík og föstudaginn 26. maí kl. 9.00-12.00 á Háskólatorgi, fyrirlestrarsal HT105, í Háskóla Íslands.

Víða í stjórnkerfinu, hjá þjónustuaðilum við þolendur kynbundins ofbeldis og heimilisofbeldis, lögreglu og í fræðasamfélaginu hefur undanfarin misseri átt sér stað hröð þróun við að greina fyrirliggjandi þjónustu við þolendur, hvar þörf er á að bæta úr og hvernig sé hægt að samhæfa og samræma þjónustu þeirra mismunandi aðila sem að henni þurfa að koma. Auk þess fleygir þekkingu á eðli ofbeldisins og afleiðingum þess fram, jafnt innan stjórnkerfisins og fræðasamfélagsins sem og hjá þolendamiðstöðvunum sjálfum.

Sigurhæðir skipuleggja ráðstefnuna með stuðningi frá European Family Justice Center Alliance. Að ráðstefnunni standa auk þess Bjarkarhlíð, dómsmálaráðuneyti, félags- og vinnumarkaðsráðuneyti, heilbrigðisráðuneyti, Jafnréttisstofa, Mennta- og starfsþróunarsetur lögreglu, Námsbraut í kynjafræðum við Háskóla Íslands, Ríkislögreglustjóri og Soroptimistaklúbbur Suðurlands.


Setningarávarp

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra

Developing and implementing a multidisciplinary approach to gender-based violence

Bert Groen, forseti European Family Justice Center Alliance

Sérstaða íslensku þolendamiðstöðvanna:

Framtíðarsýn Bjarkarhlíðar. Jenný Kristín Valberg forstöðukona Bjarkarhlíðar
Þegar samfélagið stendur saman. Kolbrún Magnea Kristjánsdóttir, teymisstjóri Bjarmahlíðar
Það er nógur tími. Elísabet Lorange listmeðferðarfræðingur og meðferðarstýra Sigurhæða

Íslenskar þolendamiðstöðvar, tækifæri og áskoranir framundan

Kristín Anna Hjálmarsdóttir, kynjafræðingur

Framtíðarskipan þjónustu vegna ofbeldis

Arndís Soffía Sigurðardóttir sýslumaður og formaður starfshóps félags- og vinnumarkaðsráðuneytis um mótun tillagna um fyrirkomulag þjónustu vegna ofbeldis

Aðgerðir dómsmálaráðuneytis gegn kynbundnu ofbeldi

Ragna Bjarnadóttir skrifstofustjóri skrifstofu almanna- og réttaröryggis í dómsmálaráðuneytinu

Breytt nálgun lögreglu

Sigríður Björk Guðjónsdóttir Ríkislögreglustjóri

Heilbrigðisþjónusta við þolendur kynbundins ofbeldis

Drífa Jónasdóttir sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu

Trauma-informed Care and Hope based theory and practice

Pascale Franck, framkvæmdastjóri EFJCA

EMDR meðferð Sigurhæða og árangur hennar

Jóhanna Kristín Jónsdóttir, sálfræðingur Sigurhæða

Masterclass: Coercive Control and the Homicide Timeline

Dr. Jane Monckton Smith, prófessor við Háskólann Gloucestershire

Þjónusta sveitarfélaga við þolendur kynbundins ofbeldis: Þarf hún að aukast?

Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga

Saman gegn ofbeldi í Reykjavík

Halldóra Dýrleifar Gunnardóttir sérfræðingur í jafnréttismálum á Mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu Reykjavíkurborgar

The concept of coordination from the FJC perspective – Why, Who and How?

Bert Groen og Pascale Franck

Lokaorð

Hildur Jónsdóttir verkefnisstjóri Sigurhæða

Previous
Previous

Svar við bréfi ráðherra

Next
Next

Frá hugmynd til framkvæmdar