Soroptimistaklúbbur Suðurlands er frumkvöðull að stofnun Sigurhæða. Soroptimistar eru aldargömul alþjóðleg samtök kvenna sem vinna að jafnrétti, mannréttindum, bættri stöðu kvenna og sjálfbærri þróun í heimabyggð, heimalandi og á alþjóðavettvangi. Fyrsti íslenski klúbburinn var stofnaður 1959 og eru alls 19 klúbbar núna starfandi um land allt.

Um okkur

Meðferðaraðilar

SÁLFRÆÐINGUR

Jóhanna Kristín Jónsdóttir

Jóhanna er sálfræðingur, með MA gráðu í menningarstjórnun og hefur sinnt sálfræðiþjónustu í fimmtán ár. Hún hefur lokið sérnámi í Hugrænni atferlismeðferð, alhliða þjálfun í klínískri dáleiðslu og EMDR áfallameðferð auk þess að vera teymisstýra ASSYST. Jóhanna vann lengi á BUGL, sinnti greiningum og meðferð ungmenna og var ráðgefandi fyrir Barnaspítalann. Hún hóf rekstur eigin stofu árið 2011 og er með samstarfssamning við Heilsuvernd og VIRK starfsendurhæfingarsjóð. Jóhanna hefur stundað rannsóknir, haldið námskeið og sinnt fræðslu til fyrirtækja. Hún sinnir meðferð skjólstæðinga sem glíma við depurð, kvíða, örmögnun og afleiðingar áfalla og hefur mikinn áhuga á að leiða manneskjuna í átt að auknum lífsgæðum í lífi og starfi.

SÁL- OG ÁFALLAFRÆÐINGUR

Patrycja Baczek

Patrycja er sál- og áfallafræðingur með framhaldsnám í dansþerapíu.

FRAMKVÆMDASTÝRA

Anna Björg Stefánsdóttir

Anna Björg er framkvæmdastýra Sigurhæða og sér um daglegan rekstur. Hún er að ljúka laganámi og hefur lokið diplomanámi í mannauðsstjórnun.

IÐJUÞJÁLFI OG FJÖLSKYDUMEÐFERÐARFRÆÐINGUR

Helga Jóna Sigurðardóttir

Helga er iðjuþjálfi (BSc) og fjölskyldumeðferðarfræðingur (MA) að mennt. BS ritgerðin hennar fjallaði um Færni fanga og ánægju þeirra við iðju og meistaraverkefnið til fjölskyldumeðferðar um Upplifun, líðan og bjargráð aðstandenda krabbameinsgreinda sem nýta sér þjónustu Ljóssins. Helga Jóna starfaði frá 2003-2017 á BUGL, með börnum og fjölskyldum þeirrra í hinum ýmsum teymum á göngu- og legudeild, almennu teymi, átröskunarteymi og transteymi. Frá byrjun árs 2017 hefur hún verið fastráðin í Ljósinu -endurhæfingarmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra. Helga Jóna hefur lokið nokkrum námskeiðum bæði á Íslandi og erlendis í Reynslunámi (Experiential Learning/Adventure Therapy) og hefur m.a. nýtt það nám til viðbótar sinni menntun í námskeiðshald fyrir vinnustaði, stofnanir og samtök, s.s. Sorgarmiðstöðin, Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis og Regnbogabörn. Helga Jóna sinnir reglulegri endurmenntun. Helga Jóna hefur reynslu af einstaklings-, para- og fjölskylduviðtölum

MEÐFERÐARSTÝRA

Elísabet Lorange

Elísabet er listmeðferðarfræðingur og kennari að mennt. Hún hefur unnið sem sjálfstætt starfandi listmeðferðarfræðingur sl. 15 ár. Hún hefur sinnt einstaklingum á öllum aldri og vinnur útfrá sálrænni djúpvinnu með áherslu á tengsl og tilfinningalega úrvinnslu. Undanfarin ár hefur Elísabet sérhæft sig í vinnu með fullorðnum og fósturfjölskyldum. Elísabet hefur einnig stýrt námskeiðahaldi og þjónustað stofnanir og samtök á landsvísu eins og barnaverndir, grunnskóla, Rauða krossinn, Ljósið, Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis, Sorgarmiðstöðina, Foreldrahús, StarfA (starfsendurhæfing Austurlands), VáVest, Námsflokka Reykjavíkur og Bataskóla Íslands. Elísabet, ásamt Valgerði H. Bjarnadóttur, er stofnandi Draumsögu – náms í draumfræðum.

HJÚKRUNAFRÆÐINGUR

Margrét Ýrr Sigurgeirsdóttir

Margrét er hjúkrunarfræðingur, með MS gráðu í stjórnun heilbrigðisþjónustu og diploma í sálgæslu. Margrét hefur starfað lengst af sem hjúkrunarforstjóri á Hjúkrunarheimilinu Lundi á Hellu og ásamt því sinnt tímavinnu á bráðamóttöku LSH og á HSU. Margrét hefur starfað með björgunarsveit í 30 ár og lokið fjölda námskeið í tengslum við sálrænan stuðning og áfallahjálp. Einnig hefur Margrét lokið námskeiðum í djúpslökun og er með kennsluréttindi í Yoga nidra djúpslökun sem reynst hefur mörgum vel við að takast á við streitu og vinna úr áföllum. Margrét starfar í dag sem hjúkrunarfræðingur/hjúkrunarstjóri á heilsugæslu Rangárþings og er sjálfboðaliði í Flugbjörgunarsveitinni á Hellu og í viðbragðshóp Rauðakrossins í sálrænum stuðningi á Suðurlandi. Margrét er systir í Soroptimistaklúbbi Suðurlands

Bóka viðtalstíma

Öll þjónusta Sigurhæða er veitt þér að kostnaðarlausu. Þú getur bókað viðtalstíma með því að klikka á hlekkinn hér fyrir neðan, sent tölvupóst eða hringt í síma 8345566

Móttökufreyjur Sigurhæða

Móttökufreyjur Sigurhæða koma úr röðum Soroptimistaklúbbs Suðurlands. Þær sjá um móttöku skjólstæðinga, símsvörun og skipuleggja viðtöl hjá meðferðaraðilum. Allar móttökufreyjur hafa lokið ítarlegu undirbúningsnámskeiði og undirrita þagnarheit sem gildir áfram þótt látið sé af störfum.